HFR  Æfingar & mót  Korkur  Sölutorg  Blue Lagoon challenge
Fréttir | Um félagið | Stjórnin | Reglur | Skráning í HFR | Úrslit

 :: Úrslit sumarið 2001

Fjallahjól | Brun | Götuhjól

 

Kambakeppni 8,9 km.Tímakeppni
Haldið 09.09.2001 

Haukur M Sveinsson vann Kambakeppnina sem fram fór á sunnudagsmorgunninn 9.9. Haukur er nýbakaður íslandsmeistari í tímakeppni og í mjög góðu formi um þessar mundir. Hann bar höfuð og herðar yfir aðra keppendur og náði mjög góðum tíma, en hjólreiðamenn hafa haft það fyrir sið að keppa upp kambana í rúm tíu ár. Kambakeppnin er tímakeppni, þannig að keppendur eru ræstir einn og einn í einu, með mínútu millibili. Metið á þessari leið, frá hringtorgi við Hveragerði, upp að sæluhúsinu á Hellisheiði, er 18:29 mín. Það setti hjólakappinn Einar Jóhannsson.

NR.

Nafn.

Tími

1.

Haukur Sveinsson

19:56,31

2.

Skúli Magnússon

20:58.57

3.

Haukur Arason

24:35.06

 

 

 

Íslandsmeistaramót í Tímakeppni
26.08.2001 á Þingvöllum.

Haukur M. Sveinsson sigraði með yfirburðum á íslandsmóti í einstaklingsstarti götuhjóla sem fram fór á Þingvöllum á sunnudag. Haukur mætti einbeittur til leiks og hjólaði á yfir 37 km hraða á klukkustund og skaut mörgum af okkar bestu hjólreiðamönnum ref fyrir rass, þrátt fyrir ungan aldur. Haukur er aðeins 17 ára og hefur síðustu ár verið meðal okkar efnilegustu hjólagarpa, en það er hann ekki lengur, nú er hann orðinn góður! Í öðru sæti varð Steinar Þorbjörnsson nýbakaður íslandsmeistari á götuhjólum og Gunnlaugur Jónasson í því þriðja. Tmakeppni fer þannig fram að keppendur eru ræstir einn og einn í einu og tíminn tekinn á hverjum fyrir sig. Keppendur nota liggistýri og annan útbúnað til að minnka loftmótstöðu hjólanna og ná þannig mun meiri hraða en ella. Á þingvöllum voru um fimm vindstig þennan dag sem blésu þvert á brautina sem hjólað var á og hefði Haukur vafalaust náð enn meiri hraða við bestu aðstæður.
 

NR.

Nafn.

Tími

1.

Haukur Sveinsson

26.40

2.

Steinar Þorbjörnsson

27.13

3.

Gunnlaugur Jónasson

27.18

4.

Skúli Magnússon

28.22

5.

Óskar Örn Jónsson

29.00

6.

Emil Þ. Guðmundsson

30.12

7.

Bjarni Helgason

32.30

8.

Hlynur Þorsteinsson

42.32

9.

Þorsteinn Helgason

43.22

10.

Guðjón Ólafsson

46.22

11.

Eyþór Þorsteinsson

47.18

 

Íslandsmótið í götuhjólreiðum
19.08.2001

Steinar Þorbjörnsson varð íslandsmeistari á götuhjólum nú á sunnudag í Hvalfirði. Steinar hefur áður verið íslandsmeistari á fjallahjólum en þetta er hans fyrsti titill á götuhjólunum. Hjólað var inn eftir Hvalfirði, snúið við inni í botni og hjólað til baka, samtals um 60 km. Steinar var langsterkastur, stakk af í brekku og hjólaði einn í mark um 40 km.
Í unglingaflokki sigraði Haukur M. Sveinsson sem varð annar í fullorðinsflokki. Hlynur Þorsteinsson sigraði með yfirburðum í piltaflokki.

Úrslit:
1.            Steinar Þorbjörnsson                                  1,45:57
2.            Haukur M. Sveinsson                                   1,47:03
3.            Marinó Sigurjónsson                                     1,48:17
4.            Óskar Örn Jónsson                                       1,51:47
5.            Gunnlaugur Jónasson                                      2,03:47

Unglingaflokkur 16–19 ára
1.            Haukur M Sveinsson                                    1,47:03

Piltaflokkur 13-15 ára, um 25  km.
1.            Hlynur Þorsteinsson                                    1,00:44
2.            Arnþór Ingi Andrésson                               1,03:38
3.            Guðjón Ólafsson                                        1,10:54
4.            Eyþór Þorsteinsson                                    1,20:25

 

 

Þriggja leggja keppnin 30.06.2001
Þingvellir 3 hringir & Nesjavalla leið frá Suðurlandsvegi.& Krísuv.vegur 15 k tímak

Þingvellir þrír hringir Nesjavellir
Nafn hringur1 hringur 2 hringur 3 lokatími lokatími
1.Einar Jóhannson 30:05 29:35 27:52 1:27:33 1:23:12
2:Haukur M. Sveinsson 30:05 29:35 27:52 1:27:33 1:23:40
3:Emil Þ. Guðmundsson 30:05 29:35 27:52 1:27:33 1:23:27
Óskar Örn Jónsson 30:05 29:35 27:52 1:27:33 Mætti ekki
Steinar Þorbjörnsson Mætti ekki Mætti ekki

 

Time Trial Heildar tími þriggja leggja
Nafn milli tími milli tími Lokatími lokatími
1.Einar Jóhannson 11:32 10:51 22:23 3:13.08
2:Haukur M. Sveinsson 12:23 11:27 23:50 3:15.03
3:Emil Þ. Guðmundsson 13:34 12:39 26:13 3:17.13
Óskar Örn Jónsson Mætti ekki Luku ekki keppni
Steinar Þorbjörnsson 12:11 11:58 24:09 Luku ekki keppni

 

 

 

 

Höfðabakkakeppnin
16.06.2001

Úrslit 20 hringir

Nafn Tími
1. Haukur Sveinsson 51:03
2. Guðmundur Guðmundsson 51:38
3. Pálmar Kristmundsson 52:00

Unglingaflokkur 20 hringir

Nafn Tími
1. Haukur Sveinsson 51:03
2. Guðmundur Guðmundsson 51:38

Piltaflokkur 13-14 ára, 10 hringir

Nafn Tími
1. Hlynur Þorsteinsson 33:20

Millitímar á hring.

Hringur 1 Hringur 2 Hringur 3 Hringur 4 Hringur 5 Hringur 6 Hringur 7 Hringur 8 Hringur 9 Hringur 10
3:00 3:39 2:13 2:23 2:33 2:47 2:27 2:30 2:33 2:31
Hringur 11 Hringur 12 Hringur 13 Hringur 14 Hringur 15 Hringur 16 Hringur 17 Hringur 18 Hringur 19 Hringur 20
2:35 2:58 2:28 2:36 2:46 2:09 2:15 2:23 2:25 2:22

 

 

Götukeppni í San Marino 2001

Íslensku Hjólreiðakeppendurnir luku keppni á smáþjóðaleikunum á laugardag með þátttöku í hópkeppni. 36 keppendur hófu keppni og lentu okkar menn þeir Einar Jóhannsson, Guðmundur Guðmundsson og Steinar Þorbjörnsson í 29, 32 og 33 sæti, en Róbert Pétursson heltist úr lestinni með krampa í kálfa eftir nokkra hringi. Brautin sem keppt var á var mjög erfið og hækkar samtals um 2400 metra sem jafngildir átta Kömbum. Hitastigið í San Marino var nokkuð lægra en dagana á undan eða rétt undir 20°. Keppendir frá Lúxemborg tóku völdin í keppninni og urðu í fyrstu þrem sætunum, stungu einfaldlega af og hjóluðu saman í mark með stíl. Gunnlaugur Jónasson flokkstjóri íslensku keppendanna sagðist vera ánægður með sína menn sem hefðu staðið sig vel miðað við erfiðar aðstæður. "Við renndum blint í sjóinn, enda átta ár síðan íslenskir hjólreiðamenn tóku síðast þátt í Smáþjóðaleikum. Við höfðum vissulega vonast eftir að verða framar, en nú þekkjum við styrkinn á þessari keppni og erum ákveðnir í að mæta fílefldir á næstu leikum."

Position ID Athlete Surname Name Country Time Delay Medal
1 Schleck Frank LUX 02 51 24 00 G
2 Vanacker Marc LUX 02 51 24 00 S
3 Fogen Steve LUX 02 51 24 00 B
4 Bayer Rafael LIE 02 58 37 00
5 Burkhard Hans LIE 02 58 37 00
6 Rossi Mario SMR 02 58 56 00
7 Riart Escribà Gerard AND 02 59 01 00
8 Wolf Ewald LIE 02 59 06 00
9 Galea David MLT 02 59 14 00
10 El Allaoui Moloud AND 03 00 19 00
11 Demetriou Nicos CYP 03 04 05 00
12 Gatt Christopher MLT 03 04 10 00
13 Marxer René LIE 03 04 28 00
14 Kotopoulis Theodoros CYP 03 04 28 00
15 Tura Maurizio SMR 03 04 51 00
16 Giulietti Luigi SMR a 1 giro
17 Zafferani Luca SMR a 1 giro
18 Scarponi Paolo SMR a 1 giro
19 Miquet Roger MON a 1 giro
20 Schiavone Jack MLT a 1 giro
21 Frisoni Guido SMR a 1 giro
22 Stoppa Frédéric MON a 1 giro
23 Dahm Jacques LUX a 1 giro
24 Langellotti Umberto MON a 1 giro
25 Emiliani Pier Lorenzo SMR a 1 giro
26 Gonzalez Fuentes Joan Josep AND a 1 giro
27 Lacadee Frédéric MON a 1 giro
28 Charalambous Alexis CYP a 1 giro
29 Johannsson Einar ISL a 1 giro
30 Bonello Etienne MLT a 1 giro
31 Muraccini Gian Luca SMR a 1 giro
32 Gudmundsson Gudmundur ISL a 1 giro
33 Thorbjornsson Steinar ISL a 1 giro

Tímakeppni í San Marino

Íslensku hjólreiðakeppendurnir hófu keppni í dag 29.05.2001 með þátttöku í tímakeppni þar sem þátttakendur eru ræstir með einnar mínútu millibili. David Miller sigraði með yfirburðum enda leiddi kappinn Tour de France þrjá fyrstu dagana í fyrra. Einar Jóhannsson varð í 20. sæti, Steinar Þorbjörnsson 24, Guðmundur Guðmundsson 25. og Róbert Pétursson varð 27. Hjólaðir voru 17 km á mjög erfiðri braut og ekki bætti úr skák að hitinn var 36 stig sem var heldur heitt fyrir okkar menn.

Position ID Athlete Surname Name Country Time Delay Medal
1 Millar David MLT 00:22:28:48 00:00:00:00 G
2 Fogen Steve LUX 00:23:47:16 00:01:18:67 S
3 Vanacker Marc LUX 00:24:23:93 00:01:55:44 B
4 Schiavone Jack MLT 00:25:25:68 00:02:57:20
5 Burkhard Hans LIE 00:25:33:96 00:03:05:47
6 Bayer Rafael LIE 00:25:36:34 00:03:07:85
7 Tura Maurizio SMR 00:25:48:35 00:03:19:86
8 Wolf Ewald LIE 00:25:48:91 00:03:20:43
9 Kotopoulis Theodoros CYP 00:25:49:21 00:03:20:72
10 Frisoni Guido SMR 00:26:05:44 00:03:36:95
11 Schleck Frank LUX 00:26:23.00 00:03:54:52
12 Gatt Christopher MLT 00:26:31:05 00:04:02:56
13 Charalambous Alexis CYP 00:26:36:36 00:04:07:87
14 Galea David MLT 00:26:37:18 00:04:08:69
15 Stoppa Frédéric MON 00:26:43:93 00:04:15:44
16 Antoniou Antonis CYP 00:26:47:28 00:04:18:79
17 Demetriou Nicos CYP 00:26:54:30 00:04:25:81
18 Scarponi Paolo SMR 00:26:59:75 00:04:31:26
19 Lacadee Frédéric MON 00:27:08:28 00:04:39:79
20 Johannsson Einar ISL 00:27:17:91 00:04:49:42
21 Miquet Roger MON 00:27:30:53 00:05:02:04
22 Dahm Jacques LUX 00:27:47:36 00:05:18:87
23 Marxer René LIE 00:27:49:26 00:05:20:77
24 Thorbjornsson Steinar ISL 00:28:11:77 00:05:43:28
25 Gudmundsson Gudmundur ISL 00:29:12:22 00:06:43:73
26 Langellotti Umberto MON 00:29:12:89 00:06:44:40
27 Petursson Robert Gretar ISL 00:31:05:31 00:08:36:82

 

Kepptni á götuhjólum á Þingvöllum 29.04.2001

Einar Jóhansson vann hjólreiðakeppni á götuhjólum sem fram fór nú á sunnudag á Þingvöllum. Hjólaðir voru fimm hringir í þjóðgarðinum á Þingvöllum samtals um 85 km. Einar stjórnaði keppninni frá upphafi og hélt upp miklum hraða í hópnum. Hópurinn þynntist eftir því sem leið á keppnina og keppinautar Einars helltust úr lestinni, einn af öðrum. Á síðasta hring voru aðeins þrír eftir í fremstir, þeir Einar, Steinar og Guðmundur. Þá gerði Einar sér lítið fyrir, sýndi sinn raunverulega styrk, stakk hina tvo gjörsamlega af og kom í mark rúmum fimm mínútum á undan næsta manni.
Í unglingaflokki sigraði Guðmundur Guðmundsson með miklum yfirburðum, enda varð hann annar í flokki fullorðinna. Hlynur Þorsteinsson sigraði í piltaflokki, einnig með yfirburðum.

Úrslit:
1. Einar Jóhannsson 2:34’16"
2. Guðmundur Guðmundsson 2:39’50"
3. Steinar Þorbjörnsson 2:40’10"
4. Róbert Pétursson 2:41’38"
5. Emil Þ. Guðmundsson 2:41’52"
6. Hákon Sigurðsson 2:41’54"
Bjarki Bjarnason hætti
Haukur M. Sveinsson hætti
Hreinn Óskarsson hætti
Gunnlaugur Jónasson hætti
Styrmir G. Ólafsson hætti
Garpaflokkur, 35+
1. Bjarni Helgason 1:57’17
2. Þorsteinn Helgason 2:26’24"
Unglingaflokkur
1. Guðmundur Guðmundsson 2:39’50"
5. Emil Þ. Guðmundsson 2:41’52"
Bjarki Bjarnason hætti
Haukur M. Sveinsson hætti
Piltaflokkur 13-14 ára, 3 hringir
1. Hlynur Þorsteinsson 2:23’37"
2. Arnþór I. Andrésson 2:36’18"

 

Tímakeppni í götuhjólreiðum Krísuvíkurvegi 07.05.01

22. apríl fór tímakeppni á Krísuvíkurvegi þar sem hjólaðir voru 18,6 km. Tímakeppni fer þannig fram að keppendur eru ræstir einn og einn í einu og tíminn tekinn á hverjum fyrir sig. Keppnin er liður í úrtökumóti Hjólreiðafélagsins fyrir smáþjóðaleikana í vor. Mættu 12 keppendur, með liggistýri og annan sérbúnað til að minnka vindmótstöðu hjólanna og auka hraðann. Brautin sem hér um ræðir er nokkuð á brattan eða hækkar um 80 m áður en snúið er við og sama leið hjóluð til baka. Nokkur vindur var að norðaustan hitinn aðeins nokkra gráður sem hægði nokkuð á mönnum, en virtist þó ekki hafa mikil áhrif á Einar Jóhannsson, sem mæti í miklum ham og var tæpum tveim mínútum á undan næsta manni í mark og náði meðalhraða 38.4 km/klst.

Úrslit:
1. Einar Jóhannsson 29’03"
2. Gunnlaugur Jónasson 31’02"
3. Róbert Pétursson 31’32"
4. Steinar Þorbjörnsson 31’41"
5 Guðmundur Guðmundsson 31’55" *
6. Skúli Magnússon 31’55"
7. Hákon Sigurðsson 32’10"
8. Jóhann Leósson 32’36"
9. Haukur M. Sveinsson 32’49"
10. Emil Guðmundsson 34’15"
11. Bjarni Helgason 38’04"

Unglingaflokkur 16-18 ára
1. Guðmundur Guðmundsson 31’55"
2. Haukur M. Sveinsson 32’49"
3. Emil Þ. Guðmundsson 34’15"

Piltaflokkur 13-15 ára
1. Hlynur Þorsteinsson 46’47"

* Guðmundur var 10/100 úr sekúndu á undan Skúla

 

Til Baka


Íslandsmeistaramótið í fjallahjólreiðum

Guðmundur Guðmundsson kom sá og sigraði á Íslandsmótinu í fjallahjólreiðum í Öskjuhlíð á þriðjudagskvöld. Átti hann harða keppni við Steinar Þorbjörnsson en þeir höfðu skifst á að leiða keppnina þangað til á lokasprettinum. Hjólaðir voru tíu hringir í skóginum á braut sem reyndi bæði á tæknilega kunnáttu manna, sem á úthaldið. Í kvennaflokki sigraði Petra Halldórsdóttir en Hildur Guðmundsdóttir sem hafði leitt keppnina varða að hætta.

Úrslit:

Karlar, 10 hringir ca 19,2 km.:
1. Guðmundur Guðmundsson             49´37”
2. Steinar Þorbjörnsson                     49´38”
3. Emil Þ. Guðmundsson                   51´59”

Garpaflokkur, 7 hringir
1. Helgi Gustafsson                            37´00”
2. Bjarni Helgason                             38:07”
3. Þorsteinnn Helgason                      44´01”

Unglingar 16-18 ára, 10 hringir:
1. Guðmundur Guðmundsson            49´37”
2. Emil Þ. Guðmundsson                   51´59”
3. Bjarki Bjarnason                           52´40”
4. Haukur Már Sveinsson                  53´28”
5. Daníel Friðriksson                         57´07”

Piltar 13-15 ára, 7 hringir:
1. Hlynur Þorsteinsson                      36´35”
2. Arnþór Ingi Andrésson        Drengir 9-12 ára, 5 hringir
Eyþór Þorsteinssson                          28´47”
Guðjón Ólafsson                                43´32”

Konur, 5 hringir
1. Petra Halldórsdóttir                           30´52”
Hildur D. Guðmundsdóttir                       hætti

Stúlkur 9-12 ára, 4 hringir:

1. Auður Andrésdóttir                             31´31”

 

Fimmtudaginn 9. Ágúst var haldinn skemmtikeppni á vegum HFR við Rauðavatn.

13 keppendur mættu til leiks og fengu allir þátttakendur verðlaunapening, pylsur frá SS eins og þeir gátu í sig látið, orkudrykk frá Vífilfelli og hjólabrúsa og derhúfur frá Nanoq.
Tókst keppnin mjög vel og var yngsta flokknum skipt í tvennt og keppt í flokki 10 ára og yngri, 11 – 12 ára og 13 –15 ára.

Úrslit:

Stúlkur 10 ára og yngri, 4 hringir:
1. Bryndís Þorsteinsdóttir              24’32”
2. Sóley Bjarnadóttir                     38’52”

Drengir 13-15 ára, 10 hringir:
1. Hlynur Þorsteinsson        46’49”
2. Arnþór Ingi Andrésson           47’18”

Drengir 11-12 ára, 8 hringir:
1. Guðjón Ólafsson                           40’53”
2. Gunnar Magnússon                       44’34”
3. Aron A. Sigurðsson                        45’13”
4. Sævar Kjartansson                     47’29”
5. Helgi Kristjánsson                    47’32”

Drengir 10 ára og yngri, 4 hringir:
1. Eyþór Jónsson                           24’29”
2. Óskar Einarsson                         26’50”
3. Einar Logi Óskarsson           29’05”
4. Kári Gunnlaugsson                  33’44”

 

Blálónskeppnin

Blálónskeppnin í fjallahjólreiðum fór fram á sunnudaginn 10.júní. Voru hjólaðir 68 km úr Hafnarfirði um Djúpavatnsleið, gegnum Grindavík og í Blálónið, þar sem allir keppendur fóru í bað. Að þessu sinni var metþátttakka þegar 42 keppendur hófu keppnina, sem var vel kynnt að þessu sinni og óvenju vel að henni staðið. Emil Þór Guðmundsson einn okkar efnilegasti hjólreiðamaður, kom sá og sigraði, eftir hörkukeppni við marga af okkar bestu og reyndustu menn. Hann hjólaði vegalengdina á 2:02’15” sem er mjög góður tími og einn sá besti sem náðst hefur á þessarri leið enda þótt vestan golan væri í fangið á honum mestalla leiðina. Emil sigraði þar með einnig í flokki 16-19 ára unglinga með miklum yfirburðum. Mikið var um bilanir og spurngin dekk og setti það nokkuð mark á keppnina að þessu sinni. Sigurvegarinn komst hinsvegar klakklaust í gegnum keppnina, en í fyrra varð hann einmitt að hætta keppni þegar sprakk hjá honum.
Í kvennaflokki sigraði Guðbjörg Halldórsdóttir með yfirburðum, enda hefur hún verið nánast einráð í þeim flokki síðustu ár. 
Jóhann Leóson sigraði í flokki 19 –34 ára en hann varð í 4. sæti í heildina.
Í fjölmennasta flokknum, flokki 35 ára og eldri kom Einar Jóhannson fyrstur í mark en hann varð annar í heildina, en lenti einmitt í því að sprengja dekk eins margir aðrir.

Flokkasskipt úrslit í Bláalónskeppninni 2001
Nafn Tími Sæti Sæti alls
Kvennaflokkur 36 ára og eldri
Guðbjörg Halldórsdóttir 02:42:11 1 23
Sigríður H. Jónsdóttir 03:36:35 2 36
Þuríður Ösk Gunnarsdóttir 03:47:02 3 38
Karlaflokkur 16-18 ára
Emil Þór Guðmundsson 02:02:15 1 1
Guðmundur Guðmundsson 02:08:51 2 3
Haukur Már Sveinsson 02:14:21 3 7
Bjarki Bjarnason 02:24:01 4 10
Hlynur Þorsteinsson 03:11:31 5 29
Daníel Friðriksson Hætti
Karlaflokkur 19-35 ára
Jóhann Leósson 02:11:16 1 4
Hákon Hrafn Sigurðsson 02:13:24 2 6
Hreinn Óskarsson 02:24:37 3 11
Birkir Marteinsson 02:29:19 4 15
Gísli Einar Árnason 02:31:16 5 17
Ólafur Th. Árnason 02:37:14 6 18
Gísli Héðinsson 02:38:36 7 20
Sigurður Hallbjörnsson 02:39:13 8 21
Marco Mintchey 02:41:16 9 22
Helgi Marcher Egons 02:48:12 10 25
Hreinn Ágúst Óskarsson 02:50:01 11 26
Jean-Baptiste Cazier 03:01:59 12 28
Axel Rodriques 03:17:30 13 31
Áki Pétur Gíslason 03:29:05 14 34
Bjarni E. Ísleifsson 04:34:09 15 40
Steinar Þorbjörnsson Hætti
Ingvar Þór Stefánsson Hætti
Karlaflokkur 36 ára og eldri
Einar Jóhannsson 02:06:38 1 2
Skúli Magnússon 02:13:19 2 5
Rémi Spillaert 02:21:45 3 8
Tómas Jónsson 02:22:08 4 9
Gunnlaugur Jónasson 02:26:11 5 12
Helgi Geirharðsson 02:26:46 6 13
Frosti Sigurjónsson 02:28:36 7 14
Óskar Örn Jónsson 02:30:18 8 16
Dagur Björn Marcher Egonsson 02:37:32 9 19
Haukur Arason 02:43:06 10 24
Óttar Arnaldsson 02:52:56 11 27
Sveinn Finnbogason 03:12:41 12 30
Bjarni Helgason 03:17:36 13 32
Jakob V. Guðmundsson 03:18:00 14 33
Albecht Ehmann 03:29:08 15 35
Þorsteinn Helgason 03:36:37 16 37
Alexander Diehl 03:53:54 17 39
Róbert Gunnarsson Mætti ekki
 
Heildarúrslit í Bláalónskeppninni 2001:
 
Nafn Tími Sæti alls
Emil Þór Guðmundsson 02:02:15 1
Einar Jóhannsson 02:06:38 2
Guðmundur Guðmundsson 02:08:51 3
Jóhann Leósson 02:11:16 4
Skúli Magnússon 02:13:19 5
Hákon Hrafn Sigurðsson 02:13:24 6
Haukur Már Sveinsson 02:14:21 7
Rémi Spillaert 02:21:45 8
Tómas Jónsson 02:22:08 9
Bjarki Bjarnason 02:24:01 10
Hreinn Óskarsson 02:24:37 11
Gunnlaugur Jónasson 02:26:11 12
Helgi Geirharðsson 02:26:46 13
Frosti Sigurjónsson 02:28:36 14
Birkir Marteinsson 02:29:19 15
Óskar Örn Jónsson 02:30:18 16
Gísli Einar Árnason 02:31:16 17
Ólafur Th. Árnason 02:37:14 18
Dagur Björn Marcher Egonsson 02:37:32 19
Gísli Héðinsson 02:38:36 20
Sigurður Hallbjörnsson 02:39:13 21
Marco Mintchey 02:41:16 22
Guðbjörg Halldórsdóttir 02:42:11 23
Haukur Arason 02:43:06 24
Helgi Marcher Egons 02:48:12 25
Hreinn Ágúst Óskarsson 02:50:01 26
Óttar Arnaldsson 02:52:56 27
Jean-Baptiste Cazier 03:01:59 28
Hlynur Þorsteinsson 03:11:31 29
Sveinn Finnbogason 03:12:41 30
Axel Rodriques 03:17:30 31
Bjarni Helgason 03:17:36 32
Jakob V. Guðmundsson 03:18:00 33
Áki Pétur Gíslason 03:29:05 34
Albecht Ehmann 03:29:08 35
Sigríður H. Jónsdóttir 03:36:35 36
Þorsteinn Helgason 03:36:37 37
Þuríður Ösk Gunnarsdóttir 03:47:02 38
Alexander Diehl 03:53:54 39
Bjarni E. Ísleifsson 04:34:09 40
Daníel Friðriksson Hætti
Steinar Þorbjörnsson Hætti
Ingvar Þór Stefánsson Hætti
Róbert Gunnarsson Mætti ekki

 

Fjallahjólakeppni við Reynisvatn 13.05.01

Í morgunn sunnudag fór fram fyrsta fjallahjólakeppni sumarsins í nágreni Reynisvatns. Keppnin er liður í Bikarmóti Hjólreiðafélags Reykjavíkur og Hjólreiðanefndar ÍSÍ. Flokkur fullorðinna hjólaði fimm hringi á mjög erfiðri braut og helltust margir valinnkunnir kappar úr lestinni. Alls mættu 23 keppendur til leiks. Steinar Þorbjörnsson varð hlutskarpastur eftir mjög harða keppni, en Steinar mun einmitt keppa fyrir Íslands hönd á smáþjóðaleikunum í lok maí, ásamt þremur öðrum hjólreiðamönnum.

Fullorðnir, fimm hringir:
1. Steinar Þorbjörnsson 1:03’12"
2. Jóhann Leóson 1:12’46"
3. Hákon Sigurðsson 1:15’06"
Guðmundur Guðmundsson hætti

Garpaflokkur 3 hringir:
1. Helgi Gústafsson 58’15"
2. Bjarni Helgason 59’50"
3. Sigurður Hallbjörnsson 1:05’35"
4. Þorsteinn Helgason 1:16’30"
Remi Spilleart hætti

16-18 ára, fjórir hringir:
1. Emil Þór Guðmundsson 56’14"
2. Haukur Már Sveinsson 57’39"
3. Bjarki Bjarnason 1:00’00"
4. Daníel Friðriksson 1:07’26"
5. Óskar J. Maier 1:10’00"
Sigurður Guðlaugsson hætti

13-15 ára 2 hringir:
1. Arnþór Ingi Andrésson 46’26"
2. Hlynur Þorsteinsson 47’28"

9-12 ára 2 hringir:
1. Hannes Björn Guðlaugsson 47’19"
2. Guðjón Ólafsson 53’23"
Eyþór Þorsteinsson hætti
Gunnar Magnússon hætti

Stúlkur 9-12 ára:
1. Sara Ólafsdóttir 14’49"
2. Sif Ólafsdóttir 20’29"


Til Baka


 

Til Baka


Til Baka



© hfr 2012 [ hafðu samband ]
 
 
 
Bikecompany Reykjavik Iceland. Bike tours and rentals
 
Útilíf hjólum í vinnuna