HFR  Æfingar & mót  Korkur  Sölutorg  Blue Lagoon challenge
Fréttir | Um félagið | Stjórnin | Reglur | Skráning í HFR | Úrslit

 :: Keppnisreglur Hjólreiðafélags Reykjavíkur apríl 2000

 

Flokkaskipting | Keppnisleglur ÍSÍ | Reglur HFR | Keppnisreglur fyrir brun.

Flokkaskipting gefin út af Hjólreiðanefnd ÍSÍ með keppnisdagskráinni 2004

Flokkar:  U1=9-10 ára bæði kyn
              U2=11-12 ára bæði kyn
              U3=13-15 ára bæði kyn
              U4=16-18 ára bæði kyn
                K=Kvennaflokkur
                O=Opinn flokkur karla
                H=Heiðursmenn, hjólar styttri leið
                H30=30–39 ára
                H40=40–49 ára o.s.frv.
Þrjár keppnir af fjórum gilda til sigurs í bikarmóti. Í H-flokkum er einungis verðlaunað fyrir
keppnina sem slíka en ekki er keppt til heildarsigurs.
Flokkar H-30, H-40, U4 og Opinnflokkur eru ræstir saman, og eins H, H-50, U3 og kvennaflokkur.
Krýndur er Íslandsmeistari í Opnum flokki kvenna og karla en meistarar í öðrum flokkum.
Amk. þrír keppendur þurfa vera í hverjum flokki til að keppni í honum sé opinber.
Keppandi sem hefur unnið keppni í flokki heiðursmanna flyst sjálfkrafa í einn af hinum flokkunum, en getur með sérstöku leyfi keppnistjóra keppt áfram í flokki heiðursmanna.
Skráningu og skoðun öryggisatriða hjóla lýkur 1/2 klst. fyrir keppni.
Á götuhjólum er að jafnaði einungis keppt í flokkum U3 og eldri þ.e. 13 ára og eldri.

 

          KEPPNISREGLUR HJÓLREIÐANEFNDAR ÍSÍ–HJÓL

          Reglur þessar, ásamt reglum Alþjóða Hjólreiðasambandsins UCI, gilda í hjólreiðakeppnum á Íslandi. Varðandi þau atriði sem reglurnar fjalla ekki um skulu reglur UCI gilda.

1        FLOKKASKIPTING

          Flokkaskipting í bikarkeppnum og Íslandsmótum er eftirfarandi (karla og kvenna)

                Fjallahjól:                                                               Götuhjól:

9-10 ára 

 

11-12 ára  

 

13-15 ára  

13-15 ára

16-18 ára

16-18 ára

Öldungaflokkur 34 ára og eldri

Öldungaflokkur 34 ára og eldri

Meistaraflokkur 16 ára og eldri

 

Meistaraflokkur 16 ára og eldri

 

 

 

         Flokkur 16-18 ára og öldungaflokkur eru sérflokkar en taka einnig þátt í keppni Meistaraflokks.

Aldursflokkurinn er ákveðinn m.t.t. fæðingarárs.

Heimilt er að keppa í næsta flokki fyrir ofan, þ.e. eldri flokki, að gefnu samþykki keppnisstjóra.

2                   BIKARKEPPNI

Keppt er í bikarkeppni  í götuhjólreiðum og í víðavangskeppni fjallahjólreiða.

Í Meistaraflokki er keppt um bikarmeistaratitil. Í öðrum flokkum er keppt til meistara.

Ef fáir keppendur eru í hverjum flokki má ræsa flokka saman.

Hjólreiðanefnd ákveður á hverju ári hvaða keppnir mynda bikarmót og úr hve mörgum keppendur taka stig. Keppendur taka ekki með sér stig á milli flokka. Stigagjöf er eftirfarandi:

                1. Sæti:                   8 stig                                      5. Sæti:                   3 stig

                2. Sæti:                   6 stig                                      6. Sæti:                   2 stig

                3. Sæti:                   5 stig                                      7. Sæti:                   1 stig

                4. Sæti:                   4 stig                                      8. Sæti og neðar:   0 stig

Ef keppendur eru jafnir að stigum telst sá ofar (sigurvegari) fær hærri stig fyrir þá/þær keppnir sem sleppt er. Ef keppendur eru þá enn jafnir telst sá ofar sem lenti í hærra sæti í þeirra síðustu innbyrðis keppni.

3                   ÍSLANDSMÓT

Keppt er til Íslandsmeistara í Meistaraflokkum en unglingameistara í unglingaflokkum.

Í götuhjólreiðum er keppt í hópstarti og tímakeppni. Í fjallahjólreiðum er keppt í víðavangi

Í götuhjólreiðum skulu keppendur í mismunandi flokkum ræstir í aðskildum hópum og þeim er ekki heimilt  að nýta sér skjól frá keppendum í öðrum flokkum, nema 16–18 ára, meistara- og öldungaflokkur sem einnig keppa innbyrðis.

4                   KEPPNISREGLUR, GÖTU- OG FJALLAHJÓLREIÐAR

4.1            ALMENNAR REGLUR

Eftirfarandi reglur gilda bæði fyrir götu- og fjallahjólreiðar:

1.        HJÁLMASKYLDA ER Í ÖLLUM KEPPNUM SEM HALDNAR ERU AF FÉLÖGUM SEM AÐILD EIGA AÐ HJÓLREIÐANEFND ÍSÍ - HJÓL.

2.         Þátttaka í keppnum Hjólreiðanefndar og þeirra félaga sem aðild eiga að henni, er á ábyrgð keppenda.

3.          Keppendum er óheimilt að þiggja utanaðkomandi aðstoð í keppni. Undantekningar eru: drykkir, matur, fatnaður, slöngur, dekk og verkfæri. Einnig má skipta um reiðhjól og gjarðir í keppni á götuhjólum.

4.        Bannað er að nýta sér skjól af utanaðkomandi farartækjum í keppni að viðurlagðri brottvísun úr keppni.

5.        Bannað er að stytta sér leið. Yfirgefi keppandi keppnisleiðina verður hann að koma inn á hana á sama stað og hann yfirgaf hana.

6.        Keppandi má ekki með hegðun sinni stofna öðrum keppendum eða vegfarendum í hættu. Keppendur skulu ávallt sýna af sér íþróttamannslega hegðun.

7.        Reiðhjólið skal vera búið góðum bremsum framan og aftan og öll öryggisatriði í lagi. Stýrisendar verða að vera lokaðir.

8.        Keppandi mælist kominn í mark þegar fremsti punktur framdekks snertir lóðlínu yfir fremri brún marklínu.

Brot þessum ákvæðum geta varðað brottvísun úr keppni.

4.2     GÖTUHJÓLREIÐAR

4.2.1    REIÐHJÓLIÐ

1.        Reglur Alþjóða Hjólreiðasambandsins UCI gilda um gerð reiðhjólsins. Þó skal leyft að nota hjól í keppnum sem samræmast einungis eldri reglum UCI. Enda hafi þau verið keypt áður en UCI breytti reglunum þannig að þau urðu ólögleg.

Keppnisstjóri má leyfa keppenda að keppa á fjallahjóli og nota yfirbreiðslu á afturgjörð í tímakeppni.

2.        Reiðhjólið má ekki mælast lengra en 185 cm og ekki breiðara en 50 cm. Þvermál gjarða að meðtöldum dekkjum skal vera minnst 55 cm og mest 70 cm.

3.        Ekki mega vera á hjólinu (auka)hlutir sem ætlað er sérstaklega að minnka loftmótstöðuna, t.d. vindhlífar eða aukastýri. Þó er leyfilegt í tímakeppni að nota aukastýri ,t.d. “þríþrautarstýri”. Keppnisstjóri getur heimilað  notkun á yfirbreiðslu á afturhjóli, sbr. grein 4.2.1.1.

4.        Diskhjól að framan eru bönnuð í öllum keppnum. Í hópstarti er bannað að nota diskhjól að aftan.

5.        Í hópstarti er einungis leyfilegt að nota hefðbundið götuhjólastýri, þ.e. niðurbeygt. Keppnisstjóri getur heimilað að keppa á fjallahjóli, sbr. grein 4.2.1.1.

6.        Í tímakeppni má lóðlína frá fremsta hluta aukastýrisins ekki ná meira en 75 cm fram fyrir lóðlínu gegnum sveifarlegu. Keppnisstjóri skal leyfa að þessi fjarlægð sé 80 cm vegna líkamsvaxtar, í samræmi við reglur UCI. Skiptihandföng á enda stýris mega þó ná framar (en mega þá ekki notast til handstuðnings)

7.        Lóðrétt lína, sem snertir fremsta hluta hnakksins má ekki vera framar en 5 cm fyrir aftan lóðlínu gegnum sveifaöxul. Keppnisstjóri skal leyfa að þessi fjarlægð sé 0 cm vegna líkamsvaxtar, í samræmi við reglur UCI.

8.        Glerílát eru bönnuð.

4.2.2        KLÆÐNAÐUR KEPPENDA

1.        Bannað er að klæðast ónauðsynlegum fatnaði, vindhlífum o.þ.h. , eða öðrum útbúnaði sem hefur þann tilgang að minnka loftmótstöðu. Nota má sérstaklega formaðan hjálm í tímakeppni.

2.        Keppendur skulu klæðast fatnaði sem veitir a.m.k. lágmarks vörn ef óhapp verður.

4.2.3        KEPPNIN

1.        Keppandi sem veldur truflun á keppni með því að hindra eða stofna  í hættu öðrum keppanda (t.d. í endaspretti) skal dæmast úr leik.

2.        Á síðustu 100 m í endaspretti skal keppandi undantekningalaust halda beinni línu og hafa a.m.k. aðra hönd á stýri. Við brot á þessari reglu skal dæma keppandann í síðasta sæti í þeim hópi sem hann var í. Hafi hegðunin ekki haft nein áhrif á úrslit sprettsins er dómara heimilt að láta áminningu nægja.

3.        Í tímakeppni gildir “ 25m-reglan”: Bannað er að nýta sér skjól frá öðrum keppendum. Nái keppandi öðrum keppenda skulu þeir hafa a.m.k. 1,5 m hliðarfjarlægð á milli sín meðan farið er fram úr. Ekki síðar en eftir 1000m skal sá sem farið er fram úr hafa látið sig dragast 25 m aftur úr. 25 m-reglan gildir ekki síðustu 1000m að endamarki.Við brot á reglunni má dómari keppninnar vísa brotlegum keppanda úr keppni.

4.        Í tímakeppnum skulu keppendur ræstir af stað með 1 mínútu millibili. Rásröð skal ákveðin þannig að þeir sem lentu í fjórum efstu sætunum í viðkomandi keppni þegar hún var síðast haldin, og eru mættir til leiks, skulu ræstir síðastir (sigurvegarinn síðastur). Í vafatilvikum skal fara eftir úrslitum síðasta Íslandsmóts í tímakeppni. Rásröð annarra keppenda skal ákveðin með hlutkesti. Í ræsingu má halda keppendum og skulu allir keppendur þá fá slíka aðstoð. Ekki má ýta keppendum af stað.

4.3            FJALLAHJÓLREIÐAR

4.3.1        HJÓLIÐ

1.        Gjarðir skulu vera 26 tommu, framan og aftan.

2.        Nagladekk eru leyfð ef aðstæður krefjast. Skrúfur o.þ.h. í dekkjum eru bannaðar.

3.        Reiðhjólið skal vera búið góðum bremsum framan og aftan og öll öryggisatriði í lagi.

4.3.2        KLÆÐNAÐUR KEPPENDA

1.        Bannað er að klæðast ónauðsynlegum fatnaði, vindhlífum o.þ.h. , eða öðrum útbúnaði sem hefur þann tilgang að minnka loftmótstöðu.

2.        Keppendur skulu klæðast fatnaði sem veitir a.m.k. lágmarks vörn ef óhapp verður. 

4.3.3        KEPPNIN

1.        Keppandi sem veldur truflun á keppni með því að hindra eða stofna  í hættu öðrum keppanda (t.d. í endaspretti) skal dæmast úr leik. Að hegðunin hafi verið óviljandi eða vegna lélegs eða bilaðs búnaðar er ekki gild afsökun.

2.        Á síðustu 100 m í endaspretti skal keppandi undantekningalaust halda beinni línu og hafa a.m.k. aðra hönd á stýri. Við brot á þessari reglu skal dæma keppandann í síðasta sæti í þeim hópi sem hann var í. Hafi hegðunin ekki haft nein áhrif á úrslit sprettsins er dómara heimilt að láta áminningu nægja.

3.      Hægfara keppendum er skylt að víkja fyrir þeim hraðari án tafar.

5                    LYFJAEFTIRLIT

1.      Reglur um lyfjanotkun og eftirlit eru samkvæmt reglum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og  Alþjóða Hjólreiðasambandsins UCI.

Lög Hjólreiðafélags Reykjavíkur

 

  1. grein

Heiti

Félagið heitir ,,Hjólreiðafélag Reykjavíkur”, skammstafað HFR.

  1. grein

Markmið

Tilgangur félagsins er að iðka og efla hjólreiðar sem keppnisíþrótt og glæða áhuga almennings á gildi þeirra.

  1. grein

Félagar

Hver sá sem greiðir félagsgjald til félagsins er félagi í Hjólreiðafélagi Reykjavíkur, auk þeirra sem stjórn Hjólreiðafélags Reykjavíkur samþykkir að skuli skrá sem félaga en er undanþeginn greiðslu félagsgjalds af sérstökum ástæðum.  Félagar fara með eitt atkvæði á aðalfundi og öðrum fundum félagsins.  Einstaklingar yngri en 16 ára hafa ekki atkvæðisrétt.

  1. grein

Skipulag félagsins

Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald í málefnum félagsins.  Stjórn félagsins er æðsti aðili í málefnum þess á milli aðalfunda og mótar starfssemina í aðalatriðum.  Félagsfundi skal boða svo oft sem stjórn ákveður og ef skrifleg ósk kemur fram frá eigi færri en 10 félagsmönnum og tilgreini þeir fundarefni hans.  Halda skal félagsfund eigi síðar en þremur vikum eftir að krafan um hann barst stjórninni og skal boða félagsfundinn með viku fyrirvara.

 5.      grein

Aðalfundur félagsins

Aðalfundur félagsins skal haldinn eigi síðar en í mars ár hvert.  Til aðalfundar skal boðað með tveggja vikna fyrirvara og skal hann boðaður öllum félagsmönnum skriflega, á póstlista félagsins og á heimasíðu.  Aðalfundur félagsins er löglegur sé löglega til hans boðað, án tillits til hversu margir mæta á fundinn.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

 

a)      Kosinn fundarstjóri og fundarritari

b)      Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.

c)      Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.

d)      Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun næsta árs.

e)      Lagabreytingar, ef tillögur liggja fyrir sbr. 12. grein

f)        Kosning í stjórn félagsins;

a.       kosinn formaður,

b.      kosnir 4 einstaklingar í stjórn,

c.       kosnir 2 varamenn og atkvæði greidd um þá,

d.      kosnir 2 endurskoðendur,

e.       kosnir formenn nefnda,

                                                                          i.      Mótanefnd fjallahjólreiða,

                                                                         ii.      Mótanefnd göthjólreiða,

                                                                       iii.      Mótanefnd fjallabrun,

                                                                       iv.      Fjáröflunarnefnd,

                                                                        v.      Almenningshjólreiðar,

                                                                       vi.      Bláa Lóns áskorunin.

            g)      Skýrslur og tillögur fráfarandi nefnda

            h)      Önnur mál.

 

Á aðalfundi ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála, sbr. þó 12. grein.  Kosning skal vera skrifleg nema aðeins komi fram ein uppástunga til stjórnarstarfa, þá telst sá sem tilnefndur er, sjálfkjörinn.  Formaður nefndar velur með sér 2-4 einstaklinga í nefndina.  Stjórnarmenn eru hlutgengir í nefndir. Stjórn gegnir hlutverki nefnda ef ekki fæst fólk til að gegna störfum þeirra.

 6. grein

Reikningsár og reikningsskil

Reikningsár félagsins skal vera almanaksárið.  Allir reikningar skulu vera komnir til endurskoðenda félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.

7. grein

Félagaskrá

Stjórnin skal halda félagaskrá og endurkoða hana á hverju starfsári.

8. grein

Afsögn stjórnar

Komi til þess að stjórn segir af sér störfum skal boða til félagsfundar og nýir fulltrúar kosnir til sama tíma og fráfarandi fulltrúar voru áður kosnir.

11. grein

Félagsslit

Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi með samþykki að minnsta kosti 2/3 hluta fundarmanna og því aðeins að getið hafi verið um væntanlega atkvæðagreiðslu um framtíð félagsins í skriflegu fundarboði.  Aðalfundur ráðstafar eigum félagsins verði það lagt niður.

12. grein

Lagabreytingar

Lögum þessum má ekki breyta nema á aðalfundi félagsins, og þarf til þess samþykki 2/3 hluta atkvæðisbærra fundarmanna.Tillögur til lagabreytingar skulu tilkynntar með aðalfundarboði og skulu þær birtar á heimasíðu félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

13.grein

Gildistaka

Lög þessi öðlast þegar gildi.  Jafnframt eru felld úr gildi eldri lög félagsins.

samþykkt á aðalfundi félagsins dags. 5. mars 2005

 

 

 

 

Keppnisreglur í fjallabruni

Reglur þessar, ásamt reglum Alþjóða Hjólreiðasambandsins UCI, gilda í hjólreiðakeppnum í fjallabruni á Íslandi. Varðandi þau atriði sem reglurnar fjalla ekki um skulu reglur UCI gilda.

 

  1. Flokkar. Keppt er í tveimur flokkum, 16 ára og yngri og 17 ára og eldri.  Keppendur yngri en 18 ára skulu skila inn skriflegu leyfi foreldra / forráðamanna fyrir þátttöku þar sem fram kemur nafn og kennitala keppandans og foreldra / forráðamanna auk síma foreldra / forráðamanna
  2. Keppnisbrautin Brautin skal vera styðst 1000 metrar og lengst 3500 metrar.  Brautin skal vera öll niður í móti,  leitast skal við að hafa brautina fjölbreytta, ss. einstigi, vegslóða og grýtta kafla, auk þess að vera sambland af hröðum og tæknilegum köflum.  Brautin skal reyna á tæknilega hæfileika hjólreiðamannsins.  Rásmark skal vera 2 metra breitt og endamark 6 metra breitt (keppnisstjóri hefur leyfi til að minnka breidd endamarks í 4 metra við ef ekki næst 6 metra breidd).  Hemlunarsvæði eftir endamarkið skal vera 25 metrar og afgirt.
  3. Keppnin. Farnar eru 2 ferðir og gildir hraðari ferðin til sigurs.  Rásröð keppenda ræðst af úrslitum síðustu keppni í fyrri ferðinni þannig að keppandi með besta tímann ræsir síðastur og keppandi með slakasta tímann fyrstur. (keppnisstjóri raðar þeim keppendum sem ekki tóku þátt í síðustu keppni).  Í seinni ferðinni raðast keppendur eftir úrslitum í fyrri ferðinni þannig að keppandi sem nær besta tímanum ræsir síðastur, sá sem nær slakasta tímanum ræsir fyrstur. Keppanda nægir að ljúka annari ferðinni.    Ekki er leyfilegt að láta samanlagðan tíma úr tveimur ferðunum gilda til sigurs.
  4. Brautarmerkingar.  Brautin skal vera merkt skýrt og greinilega með skærlitum borðum.  Hættulegir kaflar skulu sérstaklega merktir með skiltum.  Verja skal hindranir, svo sem tré, veggi eða annað sem hætta er á að keppandinn hjóli á, með heyböggum, dýnum eða öðru mjúku efni til varnar keppendum.  Merkja skal steina, trjádrumba eða aðrar hindranir inni á brautinni með skærlitaðri málningu.
  5. Öryggisbúnaður.  Keppendur skulu allir klæðast eftirfarandi öryggisbúnaði:
    1. Lokuðum hjálmi
    2. Bak, hné, olnboga og axlahlífum með hörðu yfirborði (brynju).
    3. Legghlífum
    4. Hnésíðum buxum
    5. Síðerma treyju
    6. Heilum hönskum (kevlar)

 

Mælst er til þess að keppendur klæðist mjaðmahlífum, hlífðargleraugum, ökklahlífum, úlnliðshlífum og punghlífum.

 

  1. Reiðhjólið.  Reiðhjólið, og þá sérstaklega öryggisbúnaður reiðhjólsins, skal vera í fullkomnu ásigkomulagi.  Mælst er til þess að keppendur séu á fulldempuðum hjólum með diskabremsum (8 tommu)
  2. Brautarverðir.  Brautarverðir skulu staðsettir á þeim kafla brautarinnar sem hvorki eru sýnilegir starfsmönnum við rásmark eða endamark.  Brautarverðir flagga þegar keppandi stöðvast í brautinni öðrum keppendum til viðvörunnar.  Brautarverðir sjá til þess að keppandi sem stöðvast í brautinni komi sér út fyrir brautina eins fljótt og auðið er.
  3. Öryggismál.  Keppnisstjóri skal sjá til þess að hjálparsveit sé á keppnisstað á meðan keppni stendur yfir.
  4. Æfingaskylda.  Keppendur verða að fara 2 æfingaferðir í keppnisbrautinni og skulu keppendur framvísa sönnun þess við skoðun öryggisbúnaðar fyrir keppni (svo sem merki á hjóli eða stimpli á handarbak keppanda).  Brautin á að vera opin til æfinga 3 tímum fyrir keppni, auk þess sem reynt verður að hafa brautina opna á æfingu vikuna fyrir keppni.  Æfingar eru ekki leyfðar á meðan keppnin stendur yfir.
  5. Flutningur.  Keppnishaldari skal útvega flutning fyrir keppendur og hjól þeirra að rásmarki.  Keppendur eiga að vera komnir að rásmarki 15 mínútum fyrir upphaf keppni.
  6.  Skráning.  Skráning keppenda lýkur 1 tíma fyrir keppni.
  7.  Skoðun öryggisbúnaðar.  Skoðun öryggisbúnaðar fer fram klukkustund fyrir keppni.  Keppendur sem ekki uppfylla allar öryggiskröfur er vísað frá keppni.
  8. Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum Hjólreiðanefndar ÍSÍ.
  9. Keppnisstjóri ber ábyrð á að reglum þessum sé framfylgt.

 

 

 

                     

 


© hfr 2012 [ hafðu samband ]
 
 
 
Bikecompany Reykjavik Iceland. Bike tours and rentals
 
Útilíf hjólum í vinnuna