Bláalónsþrautin 2012

Keppnisreglurnar - setjum öryggi keppenda ofar öllu
 

Um reglurnar

Reglur þessar eru fyrst og fremst hugsaðar til að tryggja öryggi allra keppenda, og biðlum við til keppenda um að sýna mótshöldurum skilning og fara eftir reglunum í einu og öllu.

Hjálmskylda

Allir keppendur skulu hjóla með reiðhjólahjálm á meðan á keppni stendur.

Liggistýri

Liggistýri, letingjar, TT-bars eða annar sambærilegur búnaður er bannaður í allri keppninni.
Venjulegir stuttir stýrisendar (festir á enda fjallahjólastýris) eru leyfðir.

Hjólið

Öll venjuleg reiðhjól eru leyfileg í keppninni, en gæta skal að búnaður á því (ef til staðar), svo sem standari, bögglaberi, bretti eða annað slíkt, sé vel festur, og af búnaðinum stafi ekki hætta fyrir aðra keppendur.
Númer og flaga skulu vera fest á hjólið eins og fram kemur í þessum myndböndum.



Almennt

Keppnin fer fram á opnum vegum, og ber keppendum að virða umferðarreglur öllum stundum, t.d. þegar bílum er mætt, eða þegar hjólað er út á akbraut.
Óheimilt er með öllu að kasta frá sér rusli á leiðinni, þ.m.t. drykkjarílát, umbúðum utan af orkugeli eða orkubitum.
Keppnin er opin 16 ára og eldri.
Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni.

Brot á reglum

Þátttakendur sem ekki fara eftir ofangreindum reglum eiga á hættu að verða skráðir úr mótinu.
Mótsnefnd áskilur sér rétt til að stöðva í ræsingu hvern þann sem ekki fylgir þessum reglum