Leiðin - kort, myndir, vídeó

Mæting er við Ásvallalaug. Þaðan hjóla keppendur fylktu liði c.a. 2,5-3 km í lögreglufylgd út úr bænum. Staðnæmst við rásmark sem táknað er á myndinni hér fyrir ofan með orðinu "Start". Þá er hjólað sem leið liggur eftir malbikuðum veg fram hjá hesthúsunum í Hafnarfirði, svo er beygt inn á malarveg sem liggur yfir littla hæð og svo fram hjá Hvaleyrarvatni. Þegar þeim kafla lýkur er tekin vinstri beygja upp Krísuvíkurveg sem er malbikaður, og er hann hjólaður þar til komið er að Djúpavatnsleið.
Djúpavatnsleið er annarsvegar grófur malarvegur og hinsvegar moldarslóðar og laus sandur. Ef blautt er í veðri getur myndast þar talsvert drullusvað. Nokkrar brekkur eru á þessum hluta leiðarinnar. Við endann á Djúpavatnsleið er drykkjarstöð. Þegar komið er niður af Djúpavatnsleið er hjólað niður á gamla suðurstrandaveginn, en það er malarvegur, sem oft hefur þótt erfiður yfirferðar sökum "þvottabrettis". Þessum veg hefur verið lokað fyrir bílaumferð og hafa hestamenn hann nú til afnota. Gamli suðurstrandarvegur er hjólaður þar til komið er að hinum nýja suðurstrandavegi, en hann er malbikaður. Hann er hjólaður til Grindavíkur, en þar er beygt í gegn um bæinn í átt að Bláa lóninu. Beygt er út af malbikinu til móts við fjallið Þorbjörn, og farinn malarslóði kringum fjallið, eða þar til komið er inn á malbikaðan veg sem liggur að endamarki við Bláa lónið.
