Bláalónsþrautin 2012

Almennar upplýsingar um keppnina
 

Afhending rásnúmera og ræsing

Afhending rásnúmera fer fram í Erninum dagana fyrir mót. Eru keppendur hvattir til að nýta sér það, og kynna sér vel, hvernig tímtatökuflögur og númer skuli vera fest á hjól.
Afhending rásnúmera fer fram í Íþróttamiðstöðinni að Ásvöllum Hafnarfirði 10. júní 2012 frá kl. 8:00 - 9:30.
Ræsing fyrir 60 km leið er kl. 10:00 frá Ásvöllum.
Hópurinn hjólar saman undir lögreglufylgd suður að þar sem tímataka hefst.
Ræsing fyrir 40 km er við Djúpavatnsafleggjara á Krísuvíkurleið á sama tíma. Þeir sem keppa í 40km vegalengd þurfa sjálfir að koma sér að rásmarki.

Skráning

Netskráning: Smella hér.
Keppnisgjald er 5000 kr. á mann í netskráningu.

Innifalið í gjaldinu er aðgangur að Bláa Lóninu eftir keppnina (kr.4950). Einnig er létt máltíð eftir keppnina innifalin í skráningagjaldi.

Flokkar

60 km karlar og konur: 16-18 ára, 19-29 ára, 30-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri
40 km karlar og konur: opinn flokkur (engir aldursflokkar)

Liðakeppni

Liðakeppnin er einungis í 60 km keppninni.
3-5 keppendur eru í hverju liði, 3 bestu tímar gilda. Að a.m.k. 3 þurfa að klára keppni til að liðið fái tíma skráða.
Öll lið eru leyfileg, allur aldur og bæði kyn, fjölskyldur, fyrirtæki o.s.frv.
Hver keppandi getur einungis verið í einu liði í liðakeppni

Firmakeppni

Firmakeppnin er einungis í 60 km keppninni.
3-5 í liði, 3 bestu tímar gilda. Að a.m.k. 3 þurfa að klára keppni til að liðið fái tíma skráða.
Hugmyndin er að starfsmenn fyrirtækis taki sig saman og keppi sem lið.
Hver keppandi getur einungis verið í einu liði í firmakeppni.
Engin aukakostnaður er við liðaskráningu í firmakeppni, en við hvetjum fyrirtæki til að styrkja sína starfsmenn til þátttöku í keppninni.

Verðlaun

Verðlaun eru veitt fyrir 1.-3. sæti í hverjum flokki á 60 km leið.
Verðlaun eru veitt fyrir 1.-3. sæti í opnum flokki karla og kvenna á 40 km leið
Bláa Lónið ehf kostar öll verðlaun.
Verðlaunaafhending verður kl 15:00 við endamark á bílastæði Bláa lónsins

Drykkjastöðvar

Tvær drykkjarstöðvar, önnur við gatnamót Djúpavatns- og Ísólfskálavegar. Síðari er við endamark.
Súpa og léttmeti handa öllum keppendum í keppnistjaldi á bílastæði að lokinni keppni.
Drykkjarstöð við Ísólfskálaveg er opin til kl. 12:00. Tímataka við endamark lokar kl. 14:45.

Flutningur hjóla, farangurs og fólks

Flutningur á farangri til bláa lónsins
Vörubíll (frá vífilfelli) verður við Ásvallalaug, og flytur hann töskur keppenda upp í Bláa lón, og geta keppendur nálgast þær þar.

Flutningur til Ásvallalaugar eftir keppnina
Þegar yfir endamark er komið er hægt að sækja töskuna í vörubílinn, og að þá í sömu hendingu afhenda hjólið til fluttnings, til Ásvallalaugar.

Flutningur keppenda Áætlunarrútur eru á vegum Þingvallaleiða, og Reykjavik Excursions (verð þeirra er ekki innifalið í skráningagjaldinu). Látið bílstjórann vita tímanlega, um að hann þurfi að stöðva nálægt Ásvallalaug í Hafnafirði.
Ath. Breytingar sem kunna að verða á verði, eða rútu-áætlunum, eru ekki á ábyrgð mótshaldara.
Áætlun Þingvallaleiðar (Bus travel): http://www.bustravel.is/en/bus-schedule
Áætlun Reykjavik Excursion: http://www.re.is/DayTours/BlueLagoon/